Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 11. janúar 2022 15:30
Elvar Geir Magnússon
Hefur tekið stöðugum framförum hjá West Ham
Jarrod Bowen.
Jarrod Bowen.
Mynd: EPA
Jarrod Bowen skoraði fyrir West Ham í 2-0 sigrinum gegn Leeds í bikarleik í vikunni.

Þessi fyrrum sóknarleikmaður Hull hefur átt frábært tímabil og fékk hrós frá David Moyes, stjóra West Ham, á fréttamannafundi í dag.

„Framfarir Jarrod á þessum tveimur árum hjá okkur hafa verið algjör snilld," sagði Moyes en Bowen er nú kominn með sex mörk á tímabilinu.

„Það tók Jarrod engan tíma að aðlagast og hefur bætt leik sinn, komist upp á næsta stig. Hann verður að halda áfram á þessari braut."

„Ég tel að hann geti gert það sem hann vill, hann getur bætt sig enn frekar. En hann er að spila virkilega vel fyrir okkur núna."

West Ham er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið fær Norwich í heimsókn á miðvikudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner