Fotbolti.net
11.02.26 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

De Zerbi þungt hugsi um framtíðina

Roberto De Zerbi.

Roberto De Zerbi.

Canon

Mynd: EPA

Það er útlit fyrir að tíma ítalska stjórans Roberto De Zerbi hjá Marseille verði brátt lokið.

Fram kemur í frönskum fjölmiðlum að starf hans hangir á bláþræði. Andrúmsloftið innan Marseille hefur farið versnandi síðustu mánuði og leikmennirnir eru sagðir ósáttir við aðferðir De Zerbi.
De Zerbi er þungt hugsi þessa dagana og íhugar nú alvarlega að stíga frá borði.

Samkvæmt RMC Sport gæti ákvörðun komið í þessari viku um framtíð De Zerbi.

Marseille situr þessa stundina í fjórða sæti frönsku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.