Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 11. febrúar 2026 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rándýr ákvörðun hjá Tottenham
Thomas Frank.
Thomas Frank.
Mynd: EPA
Daninn Thomas Frank var í dag rekinn úr starfi sem stjóri Tottenham á Englandi. Síðasti leikur Danans var 1-2 tapið gegn Newcastle í gær.

Tottenham er í 16. sæti, aðeins fimm stigum frá fallsvæðinu. Liðið er án sigurs í síðustu átta deildarleikjum og hefur aðeins unnið tvo af síðustu sautjan deildarleikjum.

Frank tók við stjórastarfinu í júní eftir að Ange Postecoglou var rekinn. Hann skrifaði undir samning til 2028 og því er ákvörðunin rándýr fyrir Spurs.

The Sun tekur það saman í dag að Spurs hafi borgað 6,7 milljónir punda til að losa Frank og þjálfarateymi hans undan samningi hjá Brentford síðastliðið sumar. Ofan á það munu leggjast laun sem Frank á inni en hann var að fá um 8 milljónir punda á ári frá Tottenham.

Allt í allt gæti þessi ákvörðun, að ráða og reka Frank, kostað félagið rúmlega 30 milljónir punda.

Hver sigurleikur Frank hjá Tottenham mun þá kosta félagið 2,36 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner