Fotbolti.net
11.03.05 - 15:16
Magnús Már Einarsson

Albert Sævarsson aftur til B68 (Staðfest)

Albert Sævarsson aftur til B68 (Staðfest)
Canon
Markvörðurinn Albert Sævarsson hefur gengið til liðs við færeyska liðið B68 sem leikur í annari deild þar í landi. Albert sem er 31 árs lék með B68 árið 2003 og er hann því ekki ókunnugur hjá félaginu.
Albert gekk aftur til liðs við sína gömlu félaga í Grindavík fyrir síðasta tímabil og með Grindvíkingum lék hann sextán leiki í efstu deild en þegar að tvær umferðir voru eftir af mótinu hætti hann þar vegna launadeilu við félagið.

Albert var valinn í lið ársins í efstu deild í Færeyjum árið 2003 þegar að hann lék með B68 en Julian Johnsson sem hætti hjá Skagamönnum í haust er nú spilandi þjálfari hjá færeyska liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.