11.03.06 - 17:24
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Smertin til Dinamo Moskvu (Staðfest)

Smertin í baráttu við Edgar Davids.

Mynd: Getty Images

Smertin í baráttu við Edgar Davids.

Mynd: Getty Images
Alexei Smertin, fyrirliði rússneska landsliðisins gekk í gærdag til liðs Dinamo frá Moskvu frá englandsmeisturunum í Chelsea. Smertin sem er 30 ára gamall var einmitt búinn að segja frá því að hann væri í samræðum við liðið og vonast til að spila með liðinu í rússneska bikarnum á mánudag.
Smertin kemur eins og fyrr segir frá Chelsea en hann fór til Lundúnarliðsins frá franska liðinu Bordseaux á rúmar þrjár og hálfa milljón punda sumarið 2003. Hann spilaði áður með erkifjendum Dinamo, Lokomotiv Moskvu.
Hann fór strax á láni til Portsmouth og átti stóran þátt í að halda liðinu uppi um vorið 2004. Leiktímabilið 2004/05 spilaði hann svo með Chelsea og var enskur meistari og deildarbikarmeistari með liðinu.
Í sumar fór hann svo til Charlton á lán en hann vildi snúa heim og þurfti Alan Curbishley því að sætta sig við að missa þennan sterka miðjumann en hann spilaði honum ekki gegn Liverpool síðustu helgi vegna félagsskiptanna.