Fotbolti.net
11.03.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Norbert Farkas í KA (Staðfest)

Norbert Farkas í KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða KA

KA hefur samið við ungverska varnarmanninn Norbert Farkas og mun hann leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Norbert æfði með KA-mönnum fyrr í vetur og skoraði meðal annars í 11-0 sigri liðsins á Völsungi í Powerademótinu.

Í kjölfarið ákváðu KA-menn að gera eins árs samning við Norbert og er hann nú kominn hingað til lands þar sem hann hefur hafið æfingar.

Norbert er 31 árs gamall miðvörður en hann hefur leikið í heimalandi sínu Ungverjalandi og á Kýpur.

Hjá KA hittir Norbert fyrir landa sinn Sandor Matus sem hefur varið mark KA af stakri prýði undanfarin ár.

KA-menn hafa í vetur fengið Arnar Már Guðjónsson frá ÍA, Þorsteinn Þorvaldsson frá Magna, og Guðmund Óla Steingrímsson frá Völsungi auk þess sem þjálfarinn Dean Martin mun leika með liðinu í sumar en hann kom frá ÍA.

Heimild: Heimasíða KA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.