11.04.08 - 13:48
Hafliði Breiðfjörð
Þórhallur Hinriksson í Víking (Staðfest)

Þórhallur Hinriksson í búningi Víkings í dag.

Mynd: Víkingur

Víkingar fengu í dag góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í 1. deildinni í sumar þegar Þórhallur Hinriksson gekk í raðir félagsins frá Þrótturum. Þórhallur skrifaði í hádeginu undir eins árs samning við Víkinganna vegna þessa.
Þórhallur er 32 ára gamall og hafði í síðustu viku tilkynnt að hann væri hættur hjá Þrótti og hyggðist leita á önnur mið. Hann hóf svo æfingar með Víkingum í kjölfar þess og var í kjölfarið boðinn samningur hjá félaginu.
Á síðustu leiktíð var Þórhallur í liði Þróttar sem tryggði sér sæti í Landsbankadeildinni síðastliðið haust en hann lék 13 leiki með liðinu í 1.deildinni og 3 í VISA-bikarnum. Tímabilið 2006 lék hann 14 leiki í 1.deildinni og fjóra í VISA-bikarnum.
Þórhallur er á 32 aldursári en hann leikur sem miðjumaður og hefur leikið 90 leiki í efstu deild og skorað í þeim 6 mörk. Hann hefur leikið 5 A-landsleiki og einnig fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands.
Hann á að baki þrjá Íslandsmeistaratitla með KR og er margreyndur leikmaður. Hann lék með Val áður en hann gekk í raðir Þróttar.

Heimild: Víkingur.net