Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. apríl 2021 21:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arna lagði upp - Með fyrirliðabandið viku eftir fyrsta leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arna Sif Ásgrímsdóttir lék í vörn Glasgow City í 7-0 stórsigri gegn Forfar Farmington í skosku úrvalsdeildinni í dag.

Arna var komin með fyrirliðabandið hjá skoska félaginu í dag þrátt fyrir að hafa aðeins þreytt frumraun sína með Glasgow City um síðustu helgi.

Hún skoraði um síðustu helgi og í dag lagði hún upp ásamt því að vera traust í varnarleiknum.

Tilkynnt var um lánssamning frá Þór/KA í desember en skoska kvennadeildin fór nýlega aftur af stað eftir langa pásu vegna kórónuveirufaraldursins.

Glasgow sló út Val í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í nóvember. Sú viðureign fór í vítaspyrnukeppni. Liðið er með 24 stig eftir níu leiki í öðru sæti skosku úrvalsdeildarinnar.

Hér að neðan má sjá mörkin sem voru skoruð í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner