11.05.05 - 15:44
Magnús Már Einarsson
Víkingur R. fær varnarmann frá Serbíu (Staðfest)

Milos er hér á leik ÍA og Fylki á dögunum með tveimur félögum sínum sem voru til reynslu hjá ÍA en annar þeirra, Igor Pesic mun væntanlega semja við liðið.


Milos er hér á leik ÍA og Fylki á dögunum með tveimur félögum sínum sem voru til reynslu hjá ÍA en annar þeirra, Igor Pesic mun væntanlega semja við liðið.

Víkingur R. hefur fengið liðsstyrk fyrir 1.deildina en liðið hefur fengið serbneska varnarmanninn Milos Glogovac. Að sögn Sigurðar Jónssonar þjálfara Víkinga þá hefur Glogovac spilað þrjá leiki með liðinu og staðið sig vel en leikmaðurinn mun leika með Víkingum gegn Val á grasi í Þorlákshöfn í kvöld.
Glogovac kom ásamt tveimur löndum sínum til reynslu hjá ÍA fyrir nokkrum vikum en Skagamenn ákváðu ekki að semja við hann enda með sterka vörn fyrir.
Víkingar hafa hinsvegar núna samið við Glogovic og er það mikill styrkur því liðið fékk á sig 16 mörk í 7 leikjum í deildabikarnum sem verður að teljast heldur mikið.
Víkingar hafa hinsvegar núna samið við Glogovic og er það mikill styrkur því liðið fékk á sig 16 mörk í 7 leikjum í deildabikarnum sem verður að teljast heldur mikið.
