Fotbolti.net
11.05.06 - 10:38
Magnús Már Einarsson

Ólafur Tryggvason til ÍR (Staðfest)

Ólafur Tryggvason til ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Bakvörðurinn Ólafur Tryggvason hefur gengið til liðs við ÍR úr annarri deild á lánssamningi frá Þrótti. Ólafur skoraði tvö mörk í fimmtán leikjum í Landsbankadeildinni fyrir Þrótt í fyrra og meðal annars sigurmarkið í 1-0 sigri á Fylki.
Hann mun án efa styrkja lið ÍR-inga í baráttunni í annarri deildinni í sumar en Breiðhyltingar hefja leik þar á sunnudaginn þar sem þeir taka á móti Njarðvík í athyglisverðum leik.

Þess má svo geta að ÍR er spáð fjórða sæti í deildinni af fyrirliðum og þjálfurum og Fótbolti.net kynnir liðið til leiks í dag. Hér má sjá kynningu á liði ÍR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.