Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 11. maí 2021 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hólmbert gæti spilað í 2. umferð umspilsins
Á landsliðsæfingu í Armeníu
Á landsliðsæfingu í Armeníu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmbert Aron Friðjónsson hefur glímt við meiðsli á hné að undanförnu. Hólmbert er leikmaður Brescia á Ítalíu og Brescia er á leið í umspil um síðasta sætið í Serie A á næsta tímabili.

Brescia byrjar í 8-liða úrslitum (1. umferð) umspilsins á móti Cittadella. Cittadella er á heimavelli og fer áfram ef leikurinn endar með jafntefli, efra liðið í deildinni fær heimaleik og fer áfram ef leik lýkur með jafntefli. Leikurinn fer fram á fimmtudag.

„Skrýtn­ar regl­ur en við verðum bara að vinna. Ég næ ekki þeim leik en ef við vinn­um verð ég von­andi leik­fær í næsta leik þar á eft­ir,“ sagði Hólm­bert við mbl.is í dag.

Venezia mætir Chievo í hinum leiknum í 8-liða úrslitum og dugir Venezia jafntefli til að fara áfram.
Athugasemdir
banner