Matthías Vilhjálmsson leikmaður FH var til viðtals hjá Fótbolta.net eftir svekkjandi tap gegn KA á Dalvík í kvöld.
Lestu um leikinn: KA 1 - 0 FH
„Heilt yfir þá verðskuldaði KA sigurinn, með fjögur sláar og stangarskot, við áttum marga möguleika á því að gera betur í kringum vítateiginn en það klikkaði alltaf síðasta sendingin," sagði Matthías.
KA menn skutu nokkrum sinnum í stöng og slá í leiknum og Matthías var svekktur með að fá ekki að minnsta kosti eitt stig í kvöld.
„Úr því sem komið var var svekkjandi að missa allavega eitt stig. Þegar þriðja eða fjórða skotið fór í slá eða stöng þá hugsaði maður að þetta ætlaði ekki að fara inn en það er ekki alltaf þannig í fótbolta og því fór sem fór,"
Athugasemdir