Stuðningsmenn Víkings voru að vonum í miklu stuði þegar liðið vann 6-0 stórsigur á Þór síðastliðinn föstudag.
Gunnar á Völlum og Fannar Sveinsson voru mættir á hliðarlínuna í Víkinni til að taka upp efni fyrir kosningasjónvarp Sýnar.
Gunnar á Völlum og Fannar Sveinsson voru mættir á hliðarlínuna í Víkinni til að taka upp efni fyrir kosningasjónvarp Sýnar.
Í miðri upptöku tóku stuðningsmenn Víkings upp á því að syngja: „Fannar úr fötunum.“ Fannar lét ekki segja sér það tvisvar og fór úr úlpu, peysu og bol og kastaði bolnum upp í stúku.
Hafliði Breiðfjörð var á vellinum og náði myndir af atvikinu skemmtilega sem má sjá hér fyrir neðan.



