Fotbolti.net
24.06.26 - 13:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Gat ekki beðið eftir því að sýna að hann sé með alvöru hugarfar"

„Gat ekki beðið eftir því að sýna að hann sé með alvöru hugarfar"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Einar Freyr Halldórsson (2008) tók vítaspyrnu Þórs gegn FH á sunnudag og með því að setja boltann í markið jafnaði hann leikinn. Lokatölur urðu 1-1 og fyrsta stig Þórs eftir sjö leikja taphrinu varð staðreynd.

Einari brást bogalistin af vítapunktinum undir lok leiks gegn Keflavík fyrr í sumar en þrátt fyrir það klúður fór hann aftur á punktinn. Í viðtali eftir leikinn gegn Keflavík sagði Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, að Einar myndi líka taka næsta víti liðsins. Einar fór á punktinn, var ískaldur og renndi boltanum í hægra hornið.

Bæði Einar og Siggi voru til viðtals eftir leikinn á sunnudag.
Einar Freyr: Ég var búinn að æfa þetta á æfingu í gær
TENGT EFNI

Einar Freyr: Ég var búinn að æfa þetta á æfingu í gær

Lestu um leikinn: FH 1 - 1 Þór
„já, ég treysti honum alveg. Hann er þannig íþróttamaður, þannig þenkjandi að hann gat ekki beðið eftir því að fara aftur á punktinn og sýna að hann sé með alvöru hugarfar. Auðvitað langar þig sem þjálfara að hann fái að gera það," sagði þjálfarinn.

„Ég var búinn að æfa þetta á æfingu í gær og mér leið vel með þetta. Klúðraði síðasta víti, setti hann í hitt hornið, sáttur að hafa skorað," sagði Einar eftir leikinn. Vítaspyrnuna má sjá hér að neðan.

„Gat ekki beðið eftir því að sýna að hann sé með alvöru hugarfar"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Þá leið manni svona að þetta væri týpískt við það að lið í brekku að fá svona mörk á sig"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.