Fotbolti.net
24.06.26 - 13:45
Elvar Geir Magnússon

Úrvalslið annarrar umferðar HM - Ofurstjörnur fá ekki pláss

Cody Gakpo.

Cody Gakpo.

Canon

Mynd: EPA

Sofascore hefur birt úrvalslið 2. umferðar riðlakeppni HM. Það segir sitt um það hversu margir voru öflugir í þessari umferð að ekki er pláss fyrir ofurstjörnurnar Cristiano Ronaldo, Erling Haaland og Kylian Mbappe sem allir skoruðu tvö mörk í umferðinni.
Úrvalslið fyrstu umferðar HM - Ógnvænlegir sóknarmenn
TENGT EFNI

Úrvalslið fyrstu umferðar HM - Ógnvænlegir sóknarmenn


Eloy Room, markvörður Curacao, setti nýtt met þegar hann tryggði þjóð sinni fyrsta stigið á heimsmeistaramóti með fimmtán vörslum í markalausa jafnteflinu gegn Ekvador. Hann fékk fullkomna einkunn frá Sofascore, 10, og er því leikmaður umferðarinnar.

Hollendingar eiga tvo leikmenn í úrvalsliðinu eftir 5-1 sigur gegn Svíþjóð, það eru bakvörðurinn Denzel Dumfries sem lagði upp tvö mörk og Cody Gakpo sem var með tvö mörk og eina stoðsendingu. Þá hefur Fótbolti.net ákveðið að velja Ronald Koeman þjálfara umferðarinnar.

Nuno Mendes, leikmaður PSG, skoraði eitt mark og var stórhættulegur í 5-0 sigri Portúgals gegn Úsbekistan. Bruno Fernandes sýndi sköpunarmátt sinn í leiknum.

Englendingar eiga fulltrúa í vörninni en það er Marc Guehi eftir markalaust jafntefli gegn Gana. Við hlið hans í miðverðinum er Shahriar Khalilzadeh í Íran sem gerði markalaust jafntefli gegn Belgíu.

Stephen Eustáquio sló taktinn í spili Kanada í sigri gegn Katar og Lionel Messi er aftur í liðinu eftir sögulega tvennu fyrir Argentínu.

Fremstir eru Ayase Ueda sem skoraði tvö mörk og átti eina stoðsendingu í 4-0 sigri Japans gegn Tyrklandi og Mikel Oyarzabal sem skoraði tvö og átti eina stoðsendingu í 4-0 sigri Spánar gegn Sádi-Arabíu.
Marc Guehi.

Marc Guehi.

Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi.

Lionel Messi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.