Fotbolti.net
11.05.26 - 14:20
Kári Snorrason

Tekur enga áhættu með Arnór - „Tekur væntanlega viku, tíu daga“

Arnór Ingvi Traustason.

Arnór Ingvi Traustason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi Traustason, leikmaður KR, neyddist til að fara af velli í hálfleik í viðureign liðsins gegn Stjörnunni.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk Arnór Ingvi Traustason högg í höfuðið eftir að hafa farið í tæklingu á Örvari Eggertssyni. Í kjölfarið þurfti hann aðhlynningu og var tekinn af velli í hálfleik.
„Það lítur þannig út að hann hafi fengið vægan heilahristing. Ég ætla ekki að setja mig í læknisstellingar núna. Ég veit ekki hvað það þýðir.

Þetta tekur væntanlega viku, tíu daga. Við tökum engar áhættur með hann,“
sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson aðspurður um meiðsli Arnórs eftir leikinn á föstudag.

KR mætir aftur Stjörnunni í Mjólkurbikarnum á miðvikudaginn, næsti leikur í deild er á sunnudaginn gegn Fram.

Óskar Hrafn: Það er svo dásamlegt við Jökul

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.