Maður dagsins á HM - Trúrækni táningurinn sýndi töfra

Alajbegovic skoraði stórkostlegt mark gegn Katar.

Mynd: EPA

Alajbegovic gengur aftur í raðir Bayer Leverkusen í sumar.

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Hinn 18 ára gamli Kerim Alajbegovic er maður dagsins en hann skoraði stórkostlegt mark þegar Bosnía og Hersegóvína vann Katar. Bosníumenn tryggðu sér með sigrinum sæti í 32-liða úrslitum en þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem þeir komast upp úr riðli á HM.
Hann er áttundi yngsti leikmaðurinn sem skorað hefur á HM en markið magnaða og það helsta úr leiknum má sjá hér.
„Við gerðum stuðningsmenn okkar mjög stolta. Það er sérstakt að vera Bosníumaður. Við erum gríðarlega ánægðir með það sem við höfum afrekað og ég tel okkur hafa endurgoldið ástina sem allir hafa sýnt okkur," sagði hinn afskaplega hæfileikaríki Alajbegovic sem var valinn maður leiksins.

Ekki fæddur þegar Dzeko spilaði sinn fyrsta landsleik
Sóknarmaðurinn Edin Dzeko, 40 ára, er þekktasti leikmaður Bosníu en þess má geta að Alajbegovic var ekki fæddur þegar Dzeko lék sinn fyrsta landsleik fyrir nítján árum.
Alajbegovic fæddist í Köln í Þýskalandi en þangað höfðu foreldrar hans, sem eru báðir frá Bosníu, flutt. Fótboltaferillinn hófst með yngri liðum Kölnar áður en keppinautarnir í Bayer Leverkusen fengu hann til sín.
Snýr aftur til Leverkusen
Hann lék aldrei fyrir aðallið Leverkusen og gekk í raðir Red Bull Salzburg í Austurríki þar sem hann stimplaði sig strax rækilega inn og skoraði bæði í fyrsta deildarleiknum og bikarleiknum með félaginu 17 ára gamall. Hann var samtals með 17 mörk og stoðsendingar í 44 leikjum og skoraði glæsimark gegn Basel í Evrópudeildinni.
Heimsækir mosku í landsliðsverkefnum
Alajbegovic er fjölhæfur leikmaður sem er vígur á báða fætur. Hans helsta staða er vinstri kantur en hann getur einnig leikið sem 'tía' eða hægra megin. Hann lékk upp öll yngri landslið Bosníu og Hersegóvínu og skoraði gegn San Marínó í sínum fyrsta A-landsleik á síðasta ári.
Alajbegovic er múslimi og er mjög trúrækinn. Hann hefur heimsótt mosku í Sarajevó, höfuðborg Bosníu og Hersegóvínu, þegar hann hefur verið í landsliðsverkefnum í borginni.
Endum þetta á stuðningsmannalagi Bosníu og Hersegóvínu fyrir HM:

Augu margra félaga á Englandi og Ítalíu beinast að þessum spennandi leikmanni en frammistaða hans og hröð framþróun með Salzburg gerði það að verkum að Bayer Leverkusen ákvað að kaupa hann til baka og mun hann ganga í raðir félagsins að nýju eftir HM.???????? Insane strike from 18-year-old Alajbegovi? ????#UEL | @RedBullSalzburg pic.twitter.com/CtMc3ubEuz
— UEFA Europa League (@EuropaLeague) January 24, 2026