Fotbolti.net
11.05.26 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Valur þarf að hafa „stórkostlegar áhyggjur"

Valur fagnar marki í sumar.

Valur fagnar marki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Valur hefur ekki byrjað tímabilið vel í Bestu deild kvenna. Hlíðarendafélagið er með þrjú stig eftir þrjá leiki en stigin komu í ósannfærandi sigri gegn nýliðunum í Grindavík/Njarðvík í fyrstu umferðinni.

Síðan þá hefur Valur tapað gegn Stjörnunni og hinum nýliðunum í ÍBV. Næsti leikur er gegn Breiðabliki í kvöld og þar eru Blikarnir mun líklegri.
Þarf Valur að hafa áhyggjur af stöðu mála?

„Stórkostlegar að mínu mati," sagði Arnar Páll Garðarsson þegar rætt var um Valsliðið í Uppbótartímanum.

„Ég á mjög erfitt með að skilja fyrir hvað Valur stendur fyrir utan að spila ungum leikmönnum. Það er eitt að spila ungum leikmönnum og gefa leikmönnum tækifæri en það er annað þegar ég veit ekki hvað þær eru að reyna sóknar- og varnarlega. Ég sé ekki neitt upplegg og sé ekki neitt taktískt sem maður ætti að vera að taka eftir. Mér finnst eiginlega ekkert í gangi."

Snæbjört Pálsdóttir tók undir þetta í þættinum. „Því miður. Þessir leikir sem þær hafa spilað, vörnin er 'shaky' og það er lítið að gerast fram á við. Þær eru óheppnar að Ísabella Sara var meidd því hún er leikmaður sem getur brotið upp sóknarleikinn hjá þeim," sagði Snæbjört.

„Þær eiga kannski eftir að spila sig betur saman, en eins og staðan er núna er ekki margt sem passar þarna."

Valur gæti átt í hættu á að blanda sér bara í alvöru fallbaráttu í sumar ef hlutirnir skána ekki.

Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Valur er með þrjú stig eftir þrjá leiki.

Valur er með þrjú stig eftir þrjá leiki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Geta Vestmannaeyingar leyft sér að dreyma?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.