Spænski þjálfarinn Míchel er líklegur til að yfirgefa Girona eftir fimm ár við stjórnvöl félagsins.
Samningur hans rennur út í sumar og er Girona í harðri fallbaráttu eftir að hafa rétt tekist að forðast fall í fyrra.
Hollenska stórveldið Ajax hefur mikinn áhuga á því að ráða Míchel til starfa en hann er 50 ára gamall og hefur einnig þjálfað Rayo Vallecano og Huesca á ferlinum.
Míchel er á þriggja manna óskalista Ajax sem inniheldur einnig Arne Slot þjálfara Liverpool og einn ónefndan þjálfara sem er talinn vera hinn eftirsótti Andoni Iraola. Xavi og Inigo Pérez hafa einnig verið nefndir til sögunnar og því miklar líkur að Ajax ráði Spánverja í starfið.
Ajax fór í gegnum tvo þjálfara á yfirstandandi tímabili áður en Óscar García var færður úr unglingaliðinu til að taka við sem bráðabirgðaþjálfari út tímabilið. Liðið er svo gott sem búið að missa af meistaradeildarsæti fyrir lokaumferð deildartímabilsins eftir tap á heimavelli í gær.
Fyrrum úrvalsdeildarleikmennirnir Oleksandr Zinchenko, Takehiro Tomiyasu, Davy Klaassen, Steven Berghuis og Wout Weghorst eru meðal leikmanna í hópi Ajax.
05.05.2026 08:00
Ajax spurðist fyrir um Slot


