Fotbolti.net
11.06.25 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Angel Gomes til Marseille (Staðfest)

Angel Gomes til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Marseille hefur náð samkomulagi við Angel Gomes um að hann gangi til liðs við félagið á frjálsri sölu.

Gomes er 24 ára gamall enskur miðjumaður en hann er uppalinn hjá Manchester United. Hann gekk til liðs við Lille árið 2020 og hann lék 134 leiki fyrir franska liðið.
Hann mun ganga formlega til liðs við Marseille um mánaðarmótin þegar samningur hans við Lille rennur út. Hann skrifar undir þriggja ára samning samkvæmt heimildum Sky Sports.

Gomes hittir fyrrum liðsfélaga sinn, Mason Greenwood, hjá Marseille en þeir spiluðu sex leiki saman með aðalliði Man Utd. Gomes lék alls tíu leiki fyrir aðallið Man Utd.

Hann var orðaður við Tottenham og West Ham í úrvalsdeildinni en hefur nú valið að ganga til liðs við Marseille.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.