Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 21:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Efnilegur miðvörður frá Breiðabliki til Grindavíkur (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Grindavík
Haraldur Björgvin Eysteinsson er genginn til liðs við Grindavík frá Breiðabliki.

Haraldur er miðvörður fæddur árið 2006 en hann hefur skrifað undir samning við Grindavík sem gildir út árið 2027.

Haraldur er uppalinn í Breiðabliki og spilaði upp alla yngri flokkana. Hann er þegar byrjaður að spila með Grindavík en hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik á mánudaginn síðastliðinn þegar hann kom inn á í 2-1 sigri Grindavíkur gegn HK í Lengjudeildinni.

„Við erum gríðarlega ánægðir með að fá Harald til liðs við okkur,“ er haft eftir Haraldi Hróðmarssyni, þjálfara Grindavíkur, í tilkynningu félagsins.

„Hann hefur alla burði til að verða lykilmaður í vörninni okkar til framtíðar og við hlökkum til að sjá hann vaxa og þróast innan okkar umhverfis. Auk þess passar hann einstaklega vel inn í þann unga og metnaðarfulla leikmannahóp sem við erum að byggja upp hér í Grindavík.“

Grindavík er með 10 stig í 7. sæti Lengjudeildarinnar eftir sex umferðir.
Athugasemdir