Manchester City hefur gengið fá kaupum á hollenska miðjumanninum Tijjani Reijnders frá AC Milan.
Kaupin voru kláruð í tæka tíð fyrir HM félagsliða, Reijnders má spila með City á mótinu.
City greiðir 46,3 milljónir punda fyrir leikmanninn sem skrifar undir fimm ára samning við félagið. Hann er sá miðjumaður sem kom að flestum mörkum í ítölsku deildinni á liðnu tímabili.

Hann er fjórði leikmaðurinn í þessari viku til að semja við City. Áður höfðu þeir Rayan Cherki, Marcus Bettinelli og Rayan Ait-Nouri skrifað undir á Etihad.
„Allir vita að þetta er stærsta keppni í heimi. Ef þú horfir í síðasta tímabil, hversu mörg félög voru að berjast við hvort annað um toppsætin, getustigið er ótrúlega hátt. Það er draumur hvers leikmanns að spila í úrvalsdeildinni."
„Ég vil finna ákefðina orkuna og ákefðina sem fylgir því að spila í deildinni."
„Þú þarft að hugsa hraðar hérna, sérstaklega þegar þú spilar fyrir City þá eru svæðin minni. Ég vil þróast meira í því og er spenntur fyrir því," sagði Reijnders í sínu fyrsta viðtali sem leikmaður City.
Hann er 26 ára Hollendingur sem hefur verið hjá Milan síðan 2023.
Athugasemdir