Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 11:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Topplið Þróttar sækir framherja frá Bandaríkjunum (Staðfest)
Kvenaboltinn
Kayla Rollins.
Kayla Rollins.
Mynd: Þróttur R.
Bandaríski framherjinn Kayla Rollins hefur gengið til liðs við Þrótt og mun leika með kvennaliði félagsins frá og með 15. júlí, þegar félagaskiptaglugginn opnar á ný.

Þetta kemur fram í tilkynningu úr Laugardalnum á þessum ágæta miðvikudegi.

„Kayla er mjög kröftugur framherji, bæði snögg og sterk. Hún lék síðast með Milwaukee háskólanum í Bandaríkjunum þar sem hún skoraði 18 mörk í 21 leik á síðasta tímabili og sló hvert metið á fætur öðru," segir í tilkynningunni.

„Kayla er þegar komin til landsins og mun æfa með Þrótti þar til leikheimild fæst að loknu hléi sem gert verður á Bestu deildinni vegna Evrópumóts kvenna í Sviss."

„Við væntum mikils af Kaylu og trúum því að hún geri gott lið enn betra."

Þróttur er að missa Caroline Murray til Bandaríkjanna og kemur Rollins eflaust til með að fylla það skarð.

Þróttarar hafa leikið frábærlega í sumar og eru á toppi Bestu deildarinnar með 22 stig, enn taplausar.
Athugasemdir
banner
banner