Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 20:45
Brynjar Ingi Erluson
Ngumoha með glæsimark í stórsigri Englendinga
Ngumoha heillaði Thomas Tuchel á æfingum og í leikjum
Ngumoha heillaði Thomas Tuchel á æfingum og í leikjum
Mynd: EPA
Ungstirnið Rio Ngumoha var á skotskónum í 6-0 stórsigri enska landsliðsins á Miami FC í æfingaleik sem fór fram fyrir luktum dyrum í West Palm Beach í Flórída í dag.

Ngumoha, sem er 17 ára gamall, er ekki í 26 manna landsliðshópi Englendinga en hefur verið að æfa og spila með liðinu í undirbúningnum.

Hann var valinn maður leiksins í fyrsta landsleik sínum á dögunum og átti svo aðra stórkostlega frammistöðu gegn Miami FC, sem var síðasti leikur Englendinga fyrir heimsmeistaramótið.

Craig Hope hjá Daily Mail segir hann hafa skorað stórglæsilegt mark fyrir utan teig gegn Miami.

Þar kemur fram að Ivan Toney hafi skorað þrennu og að Jordan Henderson og Ethan Nwaneri hafi einnig komist á blað.

Kobbie Mainoo og Marc Guehi áttu góðan leik í liði Englendinga, en leikmenn á borð við Jude Bellingham og Harry Kane voru ekki með þar sem þeir spiluðu í 3-0 sigrinum á Kosta Ríka á dögunum.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner