Fotbolti.net
11.06.26 - 19:31
Brynjar Ingi Erluson

Senesi kallaður inn í argentínska landsliðið

Senesi kallaður inn í argentínska landsliðið
Canon

Mynd: EPA

Argentínski miðvörðurinn Marcos Senesi hefur verið kallaður inn í argentínska landsliðið í stað Leo Balerdi. Þetta staðfestir argentínska fótboltasambandið í dag.
Balerdi var að glíma við meiðsli og neyddist því til að draga sig út úr hópnum.

Hann náði ekki leiknum gegn Íslandi, en Senesi var ekki kallaður inn í hóp Argentínu fyrr en eftir þann leik.

Það hefur nú fengist staðfest og ljóst er að hann verður með á HM.

Geggjuð vika hjá Senesi, sem var að ganga í raðir Tottenham frá Bournemouth og fær nú að upplifa drauminn um að fara á heimsmeistaramót.

Senesi er 29 ára gamall og hefur spilað frábærlega með Bournemouth síðustu ár. Hann á þrjá A-landsleiki með Argentínu, en lék sinn fyrsta landsleik árið 2022.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.