11.07.06 - 09:58
Guðmundur Dagur Ólafsson
Hasselbaink til Charlton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Charlton hafa gengið frá kaupunum á framherjanum Jimmy Floyd Hasselbaink en hann kemur til liðsins á frjálsri sölu frá Middlesbrough en hann hafði verið sterklega orðaður við félagið í vikunni.
Hinn 33 ára gamli Hasselbaink er sjöundi markahæsti leikmaðurinn í ensku Úrvalsdeildinni frá upphafi með 125 mörk í 263 leikjum fyrir Middlesbrough, Chelsea og Leeds United.
"Við erum ótrúlega ánægðir með að fá Jimmy því þegar ég hitti hann fyrst til að ræða samningsmál hans þá kom það mér skemmtilega á óvart hversu mikið hungur hann hefur enn til að sigra. Hann er fæddur sigurvegari og er jafnframt skemmtilegur karakter," sagði Iain Dowie, knattspyrnustjóri Charlton við heimasíður félagsins.
Þetta eru fyrstu stóru kaup Charlton í sumar en Dowie vonast til að Hasselbaink eigi eftir að mynda sterkt framherjapar með Darren Bent sem fór hamförum á síðasta tímabili og skoraði mikið fyrir félagið.