Fotbolti.net
11.07.06 - 14:40
Guðmundur Dagur Ólafsson

Kirkland til Wigan (Staðfest)

Kirkland til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hafa fengið markvörðinn Chris Kirkland að láni frá Liverpool í 6 mánuði með möguleika á endanlegum skiptum en hann mætti á sína fyrstu æfingu hjá félaginu í dag.
Paul Jewell, knattspyrnustjóri Wigan, ætlast til þess að Kirkland færi aukna samkeppni um markmannsstöðuna hjá félaginu en fyrir eru þeir Mike Pollitt og John Filan.

Kirkland var á láni hjá WBA á síðasta tímabili en gat aðeins spilað 10 leiki vegna meiðsla. Hann kom til Liverpool frá Coventry fyrir 5 árum síðan á 6m punda en hann hefur aðeins spilað 45 leiki fyrir þá.

Kaup félagsins á Jose Reina síðasta sumar gerði það að verkum að hann átti litla möguleika á sæti í liðinu en hann vonast til að þessi skipti hans til Wigan gerði honum kleift að berjast um sæti í enska landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.