Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 11. júlí 2019 14:37
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Böddi Löpp mætti of seint - „Fuck me, maður"
Bödda Löpp var fagnað vel og innilega þegar hann kom inn í æfingasalinn
Bödda Löpp var fagnað vel og innilega þegar hann kom inn í æfingasalinn
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Böðvar Böðvarsson, leikmaður Jagiellonia Bialystok í Póllandi, var myndaður bak og fyrir er hann mætti aðeins of seint á æfingu félagsins í dag.

Böðvar samdi við Jagiellonia í janúar árið 2018 og hefur verið að stimpla sig inn í liðið en auk þess hefur hann leikið 5 A-landsleiki.

Hann átti að mæta á æfingu pólska liðsins í morgun en virtist hafa sofið örlítið yfir sig.

Fjölmiðladeild félagsins ákvað að nýta tækifærið og taka myndband er Böddi mætti á svæðið. Honum var þó vel fagnað þegar hann kom inn í æfingasal og virðist því afar vinsæll í hópnum.

Hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner