Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. júlí 2021 17:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svona eru byrjunarliðin í úrslitaleiknum á EM
Southgate stillir upp í þriggja hafsenta kerfi.
Southgate stillir upp í þriggja hafsenta kerfi.
Mynd: EPA
Það er ekkert óvænt við byrjunarliðin fyrir úrslitaleik Evrópumótsins í kvöld. Það verður flautað til leiks á Wembley klukkan 19:00.

Eins og vanalega, þá var búið að leka enska liðinu í fjölmiðla nokkrum klukkustundum fyrir leik. Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, mun notast við þriggja manna vörn í kvöld.

Kieran Trippier, bakvörður Atletico Madrid, kemur inn í liðið fyrir Bukayo Saka.

Ítalir eru ekkert að flækja hlutina. Þeir eru með sama byrjunarlið og gegn Spáni í undanúrslitunum.

Byrjunarlið Englands: Pickford, Trippier, Walker, Stones, Maguire, Shaw, Rice, Phillips, Mount, Kane, Sterling.

Byrjunarlið Ítalíu: Donnarumma, Di Lorenzo, Bonucci, Chiellini, Emerson, Barella, Jorginho, Verratti, Chiesa, Immobile, Insigne.
Athugasemdir
banner
banner
banner