11.09.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
KA spilar aftur við Þór á nýja vellinum
Önnur undanþága frá KSÍ

Úr leik KA og Þórs í júlí

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Akureyrarslagur KA og Þórs fer aftur fram á nýjum heimavelli KA þann 19. september og er miðasala á leikinn hafin en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.

TENGT EFNI
Akureyrarslagurinn fer fram á nýja vellinum - Miðasala hefst í dag
KA hefur aftur fengið undanþágu til að leika á nýja heimavellinum og tekur þar á móti Þór undir flóðljósum á laugardagskvöld eftir átta daga. Akureyri.net greinir frá þessu og hefur það eftir Sævari Péturssyni, framkvæmdastjóra KA.
Félagið fékk einnig undanþágu um miðjan júlí þegar liðin mættust á vellinum en enn er unnið að því að klára framkvæmdir við áhorfendastúkuna og húsnæði félagsins.
„Akureyringum verður þá boðið upp á fyrsta „alvöru“ leikinn í flóðljósum og óhætt að gera ráð fyrir því að stemningin verði mögnuð á svæðinu,“skrifar Skapti Hallgrímsson á Akureyri.net.
Liðin eru hlið við hlið í fallbaráttunni, KA í næstneðsta sæti með 20 stig og Þór sæti ofar með 21 stig. Þau hafa mæst tvisvar í sumar en KA vann fyrri leikinn 1-0 með marki Hallgríms Mar Steingrímssonar og þeim síðari lauk með markalausu jafntefli.