Elías hélt hreinu í sex marka sigri á Cardiff

Elías Rafn Ólafsson spilaði gegn Cardiff í dag

Mynd: EPA

Rúnar Alex var í marki FCK

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland áttu frábæran leik í 6-0 stórsigri á Cardiff City í æfingaleik í dag.
Undirbúningstímabilið er í fullum gangi hjá íslensku atvinnumönnunum okkar og margir að nýta tækifærin.
Elías Rafn Ólafsson er aðalmarkvörður Midtjylland, sem vann nokkuð óvæntan stórsigur á Cardiff. Velska liðið komst aftur upp í ensku B-deildina á síðustu leiktíð.
Rúnar Alex Rúnarsson stóð á milli stanganna hjá FCK, sem marði 3-2 sigur á Horsens.
Davíð Kristján Ólafsson var í liði Polonia Warszawa sem tapaði 2-1 fyrir Motor Lublin, á meðan Gísli Gottskálk Þórðarson og félagar hans í Lech Poznan unnu 4-0 sigur á Bohemians frá Tékklandi.
Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn af bekknum hjá Gwangju, sem tapaði 3-0 fyrir Pohang í suður-kóresku úrvalsdeildinni. Gwangju er á botninum með aðeins átta stig eftir sautján umferðir.
Stefán Ingi Sigurðarson og Alfons Sampsted spiluðu sitt hvorn hálfleikinn í 3-0 tapi Go Ahead Eagles gegn Apollon Limassol frá Kýpur.
Brynjólfur Andersen Willumsson kom inn á sem varamaður á 60. mínútu í 3-2 sigri Groningen á Emmen og Breki Baldursson var í liði Esbjerg sem tapaði 2-0 fyrir portúgalska liðinu Mafra.
Kjartan Már Kjartansson kom inn af bekknum hjá Aberdeen, sem vann 2-0 sigur á Linfield.
Jón Dagur Þorsteinsson byrjaði hjá Herthu Berlín, sem vann 3-1 sigur á Lokomotive Leipzig.