Fotbolti.net
11.07.26 - 08:58
Auglýsingar

England-Noregur: Þú hefur til 19:00 að spá fyrir um úrslitin

Haaland fer fyrir Norðmönnum

Haaland fer fyrir Norðmönnum

Canon

Mynd: EPA

Það er sannkallaður risaslagur í kvöld á HM þar sem tveir af bestu sóknarmönnum heims mætast. Norðmaðurinn Erling Haaland hefur sýnt að það stoppa hann fáir varnarmenn og í liði Englands er Harry Kane sem hefur sýnt frábæra takta á mótinu en hann skoraði t.d. tvívegis gegn Kongó og eitt mark gegn Mexíkó. Það má því búast við spennandi sóknarleik í kvöld þegar þessi frábæru lið mætast í 8-liða úrslitum.  

Þú getur spáð fyrir um úrslit leiksins til klukkan 19:00 en að þessu sinni hefjast leikar klukkan 21:00 í sólinni í Miami í kvöld. 

Þrátt fyrir gott gengi Englands á mótinu eru ekki margir leikmenn í HM-leik Núnú og Fótbolta.net sem hafa mikla trú á að fótboltinn komi heim að þessu sinni en aðeins 7.2% telja að England nái að vinna HM. Frakkar þykja samkvæmt spámönnum líklegastir til að hreppa hnossið en 53.7% leikmanna í leiknum spá Frökkum titlinum að þessu sinni.  

Argentína, sem sumir hafa sagt vera öruggir að vinna mótið, er í öðru sæti en 16.7% telja að Messi lyfti HM-styttunni þetta árið.  

Spáðu fyrir um úrslit útsláttarleikja á HM 2026, frá 8-liða úrslitum til lokaleiks. Því fleiri leiki sem þú giskar á rétt, því fleiri stig færðu. Efstu þátttakendur vinna allt að 100.000 króna gjafakort í Smáralind. 

Að auki er sérstakur aukavinningur en leikmaður verður dreginn út af handahófi í lok leiksins og fær sá leikmaður 25.000 króna gjafakort í Smáralind. 

Farðu á vef HM-leiksins til að sýna þína spásnilli!  

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.