Samir Nasri yfirheyrður vegna gruns um aðild að peningaþvætti

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fyrrum úrvalsdeildarleikmaðurinn Samir Nasri var yfirheyrður vegna gruns um aðild að peningaþvætti í samstarfi við skipulagðan glæpahóp sem sér meðal annars um dreifingu eiturlyfja.
Le Parisien segir að Nasri hafi verið í haldi lögreglu í tíu klukkustundir áður en honum var sleppt úr haldi á fimmtudaginn. Engin ákæra var lögð fram, en Nasri var spurður út í tengsl sín við glæpamennina Hakim Berrebouh og Olivier Sabbah.
Fótboltamaðurinn fyrrverandi var meðal eigenda á skemmtistað sem Berrebouh og Sabbah eru taldir hafa nýtt til að stunda peningaþvætti.
Nasri er 39 ára gamall og lék meðal annars með Arsenal og Manchester City á ferlinum auk þess að spila fyrir franska landsliðið.
Hann starfar í dag sem fótboltasérfræðingur á frönsku sjónvarpsstöðinni Canal+.