Fotbolti.net
11.07.26 - 15:25
Elvar Geir Magnússon

Staðfesta að samkomulag við Klopp sé í höfn

Staðfesta að samkomulag við Klopp sé í höfn
Canon

Mynd: EPA

Þýska fótboltasambandið hefur staðfest að búið sé að ná samkomulagi við Jurgen Klopp um að hann taki við þýska landsliðinu.

Frekari viðræður eru framundan í komandi viku og í vinnslu sé að ná samkomulagi við Red Bull samsteypuna þar sem Klopp hefur starfað sem yfirmaður fótboltamála.
Það ætti að vera formsatriði og því stutt í að Klopp verði formlega nýr landsliðsþjálfari Þýskalands, í stað Julian Nagelsmann sem sagði af sér eftir vonbrigðin á HM.

Bernd Neuendorf forseti þýska sambandsins og varaforsetinn Hans-Joachim Watzke funduðu með Klopp í New York en þar er hann að störfum sem sérfræðingur á HM fyrir þýska sjónvarpið.

Talið er að Klopp, sem lét af störfum hjá Liverpool sumarið 2024, geri fjögurra ára samning við þýska sambandið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.