„Því miður urðum við að taka þá ákvörðun að gefa leikinn“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjórn knattspyrnudeildar Tindastól hefur sent frá sér tilkynningu eftir að liðið ákvað að mæta ekki til leiks gegn Keflavík í Lengjudeild kvenna í dag.

TENGT EFNI
Tindastóll mætir ekki til leiks
Keflavík greindi frá því á heimasvæði sínu á Facebook að Tindastóll hafi ákveðið að mæta ekki til leiks gegn Keflavík á HS Orku-völlinn í deildinni og því hafi liðinu verið dæmdur 3-0 sigur.
Nú hefur Tindastóll sent frá sér tilkynningu en þar kemur fram að mikil meiðsli hafa herjað hópinn og þá hafi það misst tvo erlenda leikmenn.
„Því miður urðum við að taka þá ákvörðun að gefa leik mfl. kvenna Tindastóls sem átti að fara fram á móti Keflavík í dag. Mikil meiðsli eru að hrjá leikmannahópinn og tveir erlendir leikmenn eru farnir úr hópnum sem hefur sett okkur í þá stöðu að ekki var unnt að fullskipa liðshópinn í dag. Reynt var að fá leiknum frestað eða spilað á öðrum tíma en því var neitað. Unnið er að því að styrkja hópinn og skýrast þau mál á næstu dögum.
Einnig eigum við von á því að einhverjir leikmenn fari að verða leikhæfar á ný eftir meiðsli,“ segir í tilkynningu Tindastóls.
Stólarnir eru á botninum í Lengjudeildinni með aðeins þrjú stig eftir níu leiki. Það féll úr Bestu deildinni á síðustu leiktíð og hafa orðið miklar breytingar á leikmannahópnum og í þjálfarateyminu.
Svanberg Óskarsson tók við liðinu í nóvember en hætti þremur mánuðum síðar. Juan Carlos Dominguez Requena tók við keflinu af honum.