Fotbolti.net
11.07.26 - 11:11
Brynjar Ingi Erluson

Tindastóll mætir ekki til leiks

Tindastóll mætir ekki til leiks
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hertz
Leikur Keflavíkur og Tindastóls í Lengjudeild kvenna í fer ekki fram þar sem Tindastóll tilkynnti KSÍ að félagið hygðist ekki mæta til leiks.
Tímabilið hefur verið erfitt hjá Tindastóli, sem dró sig úr leik í Lengjubikarnum fyrr á árinu og spilaði fáa æfingaleiki fyrir mót.

Miklar breytingar urðu á leikmannahópnum eftir fallið úr Bestu deildinni og liðið hefur aðeins unnið einn af átta leikjum sínum í sumar.

Tindastóll tapaði meðal annars fyrsta leik tímabilsins gegn Keflavík á Sauðárkróksvelli, en leiknum lauk með 8-2 sigri Keflavíkur.

Keflavík greinir frá því á Facebook að ekkert verði af seinni leik liðanna, sem átti að fara fram á HS Orku-vellinum í dag. Tindastóll tilkynnti KSÍ að liðið hygðist ekki mæta til leiks.

Keflavík fær því væntanlega dæmdan 3-0 sigur og fer með því upp úr næstneðsta sæti og í það sjöunda með 10 stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.