Fotbolti.net
11.08.06 - 06:25
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Trabelsi til Man City (Staðfest)

Hatem Trabelsi

Hatem Trabelsi

Canon

Mynd: Getty Images

Hægri bakvörðurinn Hatem Trabelsi hefur gengið til liðs við Stuart Pearce og félaga hjá Manchester City á frjálsri sölu.
Trabelsi, sem er 29 ára gamall, spilaði í sumar í sinni þriðju Heimsmeistarakeppni fyrir Túnis en talið er að hann fái borgað fyrir fjölda leikja sem hann spilar.

,,Hann hefur spilað meðal þeirra bestu hjá Ajax og hefur farið á þrjár HM þar sem hann er einnig fyrirliði. Ég hef séð hann spila með Ajax undanfarin þrjú ár og hann heillaði mig,” sagði Pearce.

Arsenal hafa lengi verið á eftir Trabelsi en hann hefur einnig orðaður við Liverpool og West Ham. Þá reyndu Monaco og Paris St Germain einnig að fá hann til sín fyrr í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.