11.08.06 - 13:27
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Lee Martin til Rangers frá Man Utd á láni (Staðfest)

Lee Martin á fleygiferð í leik með unglingalandsliði Englands

Mynd: Getty Images

Rangers hafa gengið frá lánssamningi á hinum unga og efnilega leikmanni Manchester United, Lee Martin.
Martin, sem er 19 ára gamall, hefur skrifað undir lánssamning á Ibrox út árið en talið er að hann verði stórt nafn á Old Trafford í framtíðinni.
Martin stóð sig vel á undirbúningstímabilinu með United og þar á meðal í leik gegn Ajax sem var í beinni útsendingu á Sýn í síðustu viku þar sem hann kom inná fyrir Michael Carrick snemma í leiknum.
,,Ég er í skýjunum að vera kominn til klúbbs eins og Rangers. Það er ótrúlegt og ég hef svo miklar væntingar á þessum tíma. Ástæðan fyrir því að ég kem hingað er að bæta mig sem leikmaður innan og utan vallar,” sagði Martin.
Þá hefur Paul Le Guen, stjóri Rangers, tilkynnt 19 manna hóp Rangers fyrir leikinn gegn Dunfermline á sunnudaginn og þar á meðal er einmitt Martin.