11.08.06 - 17:10
Stefán Guðberg Sigurjónsson
David James til Portsmouth (Staðfest)

James er kominn til Pompey

Mynd: Getty Images

James er kominn til Pompey

Mynd: Getty Images
Portsmouth hafa gengið frá kaupunum á David James frá Manchester City í samningi andvirði tvær milljónir punda.
Félaginu hefur gengið illa í sumar að fá inn nýja leikmenn eins og þeir ætluðu sér en hafa í þessari viku einnig fengið til sín varnarmanninnn nautsterka Sol Campbell.
James hafði áður lýst yfir áhuga sínum að flytja sig yfir til Suður-Englands og fékk ósk sína uppfyllta þegar hann skrifaði undir tveggja ára samning við Pompey.
Hann mun berjast um sæti í byrjunarliðinu við Dean Kiely og Jamie Ashdown en mjög líklegt er að James byrji fyrsta leik liðsins gegn Blackburn eftir viku á laugardaginn.
,,Hann er í mjög góðu formi og ég tel hann ennþá vera heimsklassa markvörð. Það er ekki auðvelt að finna unga markverði, Jens Lehmann og Oliver Kahn eru líklega bestu markmenn heims og samt eru þeir vel komnir á fertugsaldurinn,” sagði Harry Redknapp stjóri Portsmouth.
,,Það er ekki auðvelt að finna leikmenn á þessum tíma árs. Stóru leikmennirnir eru að fá mikinn pening núna – við erum að tala um símanúmer, þetta er að verða brjálað.”