Víkingur Reykjavík er að tryggja sér sóknarleikmanninn Adam Ægi Pálsson frá Keflavík.
Adam, sem er fæddur árið 1998, var eitt ár í 2. flokki Víkings svo hann þekkir til hjá félaginu.
Adam, sem er fæddur árið 1998, var eitt ár í 2. flokki Víkings svo hann þekkir til hjá félaginu.
Hann hefur gert góða hluti með Keflvíkingum í Lengjudeildinni á þessu tímabili en hann hefur skorað 4 mörk í 8 leikjum.
Hann var valinn leikmaður sjöttu umferðar af Fótbolta.net og hefur tvisvar verið í liði umferðarinnar.
Fleiri félög hafa sýnt honum áhuga en allt bendir til þess að hann klæði sig í Víkingstreyjuna.
Þetta yrði missir fyrir Keflavík sem er í 3. sæti með 17 stig eftir fyrstu átta leikina.
Athugasemdir