Fotbolti.net
11.08.23 - 17:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Enski boltinn - Spjallað um Liverpool og leitina að varnartengiliðnum

Auglýsing
Magnús Haukur Harðarson og Hrafn Kristjánsson.

Magnús Haukur Harðarson og Hrafn Kristjánsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Enska úrvalsdeildin hefst í kvöld þegar nýliðar Burnley mæta Englandsmeisturum Manchester City.

Síðustu daga höfum við hitað upp fyrir deildina með því að fá stuðningsmenn 'topp sex' liðanna í spjall og í dag er komið að Liverpool sem á ansi stóran aðdáendahóp hér á landi.

Hrafn Kristjánsson og Magnús Haukur Harðarson komu í heimsókn til að ræða sitt félag.

Það hefur mikið gengið á hjá Liverpool í sumar, og sérstaklega síðasta sólarhringinn eða svo. Auðvitað var rýnt söguna um Moises Caicedo ásamt mörgu öðru í þessum þætti.

Gleðilega hátíð kæru hlustendur!
Þáttinn má nálgast í spilaranum hér að ofan og í öllum hlaðvarpsveitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.