11.08.26 - 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Grindavík/Njarðvík styrkir sig í báðum endum vallarins (Staðfest)

Taylor Fox vann gullhanskann í USL deildinni í síðasta mánuði

Mynd: USL

Jennings er einnig komin til Grindavíkur/Njarðvíkur

Mynd: University of Louisville

Grindavík/Njarðvík hefur bætt tveimur leikmönnum við hópinn. Markvarðarvandinn er leystur með komu Taylor Fox frá Minnesota Aurora og sóknarmaðurinn Emersen Jennings kemur frá Louisville-háskólanum.

TENGT EFNI
Mætti á eina æfingu og átti frábæran leik - „Markmannsstaðan er líka sprenghlægileg"
Markvarðarstaðan hefur verið Grindavík/Njarðvík til vandræða í sumar. Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, ræddi sérstaklega um stöðuna eftir 4-2 sigurinn á ÍBV í síðustu umferð.
Genevieve Jae Crenshaw yfirgaf félagið á dögunum og hélt til Portúgals. Eva Ýr Helgadóttir kom inn í hennar stað og lék sinn fyrsta leik í sumar gegn ÍBV.
Grindavík/Njarðvík hefur nú styrkt markvarðarstöðuna enn frekar með komu Taylor Fox.
Fox vann gullhanskann í USL-deildinni í sumar eftir að hafa haldið átta sinnum hreinu og aðeins fengið á sig eitt mark.
Hún lék áður með háskólaliði South Carolina og var reglulega valin í yngri landslið Bandaríkjanna. Fox var einnig á mála hjá Orlando Pride í NWSL-deildinni og ætti að verða mikill styrkur fyrir liðið.
Framherjinn Jennings kemur þá til félagsins frá Louisville-háskólanum. Hún skoraði fimm mörk og gaf fjórar stoðsendingar í 21 leik á síðasta ári.
Báðar eru komnar með leikheimild og verða væntanlega til taks gegn Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á morgun.
Grindavík/Njarðvík er í fimmta sæti með 19 stig og getur komist upp í það fjórða með sigri.