Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 11. september 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Klopp sendi Coutinho skilaboð eftir skiptin
Jurgen Klopp og Philippe Coutinho.
Jurgen Klopp og Philippe Coutinho.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sendi Philippe Coutinho skilaboð eftir að hans fyrrum lærisveinn gekk í raðir Bayern Munchen á láni frá Barcelona í sumar.

„Hann sendi mér skilaboð og óskaði mér góðs gengis Hann sagði mér að Bayern er stórt félag og Bundelsligan er frábær keppni. hann sagðist vera mjög ánægður með að sjá mig þar," sagði Coutinho en hann er mikill aðdáandi Klopp.

„Hann er einfaldlega ótrúlegur þjálfari, einn sá besti í heimi. Hann er sannur leiðtogi. Ég lærði svo mikið af honum, sérstaklega þegar kom að andlegu hliðinni."

„Hann finnur alltaf réttu orðin, bæði fyrir leiki og í leikjunum sjálfum. Hann kemur okkur alltaf í gang fyrir næsta mótherja."

„Hann breytti Livepool og gerði liðið mjög sterkt á nýjan leik. Það var mikill heiður að vinna með honum."

Athugasemdir
banner
banner
banner