Fotbolti.net
11.10.05 - 16:38
Elvar Geir Magnússon

Martin Djetou kominn til Bolton (Staðfest)

Martin Djetou í búningi Fulham.

Martin Djetou í búningi Fulham.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarliðið Bolton Wanderers hefur fengið til sín franska varnarmanninn Martin Djetou. Þessi 31 árs leikmaður hefur æft með Bolton að undanförnu í þeirri von að geta sannfært knattspyrnustjórann Sam Allardyce um að hann sé rétti maðurinn til að leysa varnarvandræði liðsins.
Mikil meiðsli eru að hrjá öftustu línu Bolton og Allardyce ákvað að semja við Djetou út þetta leiktímabil. Djetou er ekki í miklu leikformi en gæti þó komið við sögu um næstu helgi þegar Bolton á leik gegn Englandsmeisturum Chelsea.

"Ég varð nauðsynlega að fá meiri breidd í varnarlínuna sem fyrst vegna meiðsla. Þegar ég heyrði að Martin var samningslaus þá ákvað ég að stökkva á þann möguleika að fá hann til Bolton," sagði Allardyce en Djetou hefur reynslu af úrvalsdeildinni eftir að hafa leikið tvö tímabil á lánssamningi hjá Fulham.

Hann lék fyrir Nice í Frakklandi síðasta sumar og fór á reynslu til þýska liðsins Duisburg sem ekki gekk vel áður en hann gekk frá samningi við Bolton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.