Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, skaut létt á ungan stuðningsmann Liverpool í skemmtilegu viðtali.
Liverpool birti í gær myndband þar sem Van Dijk er tekinn í viðtal af átta ára krökkum.
Liverpool birti í gær myndband þar sem Van Dijk er tekinn í viðtal af átta ára krökkum.
Það fyndnasta við myndbandið er þegar Van Dijk áttar sig á því að einn strákurinn er stuðningsmaður Everton. Van Dijk spurði hann hvort hann hefði verið ánægður þegar Liverpool vann Meistaradeildina og þegar strákurinn svaraði því neitandi, þá sagði Van Dijk:
„Heldurðu með Everton? Er það ekki erfitt? Það hlýtur að vera mjög erfitt," sagði Van Dijk.
Undir lok myndbandsins, sagði Van Dijk við strákinn: „Gangi þér vel. Þetta verður erfitt ár fyrir ykkur."
Liverpool er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni með fullt hús stiga eftir átta umferðir. Á meðan hefur Everton byrjað afar illa og er í fallsæti.
Gylfi Þór Sigurðsson er á mála hjá Everton.
Virgil: "You support Everton? Tough, isn't it? Must be very tough." pic.twitter.com/kgbwMeTAI3
— SH (@Sennesation) October 10, 2019
Athugasemdir