11.10.26 - 11:25
Brynjar Ingi Erluson
Tvö hártog og tvö rauð hjá leikmönnum Real Madrid á sex mínútum

Athenea sá líka rautt fyrir hártog

Mynd: EPA

Athenea sá líka rautt fyrir hártog

Mynd: EPA
Heimsmeistarar Spánar unnu 2-0 sigur á Bandaríkjunum í vináttulandsleik kvenna í gær.

TENGT EFNI
Vini Jr biðst afsökunar - Gæti misst af El Clasico
Spánn hefur verið með besta lið heims síðasta árið en mætti nú Bandaríkjunum, sem höfðu lengi verið í fararbroddi og eru enn í hópi þeirra allra sterkustu.
Patri Guijarro og Eva Navarro gerðu út um leikinn á fyrstu fimmtán mínútunum en það var rauða spjaldið undir lokin sem vakti ekki síður athygli.
Athenea del Castillo, leikmaður Real Madrid, hafði aðeins verið inni á í nokkrar mínútur þegar hún var rekin af velli fyrir að toga í hár Michelle Cooper.
Það sérkennilega var að aðeins sex mínútum áður hafði Vini Jr, annar leikmaður Real Madrid, fengið rautt fyrir nákvæmlega það sama gegn Villarreal í La Liga.
Ný aðferð hjá Real Madrid eða algjör tilviljun?

La partita di #Athenea del Castillo dura esattamente 3’, prima di essere espulsa!!
— Women Football News™ (@WomenFootballN_) October 10, 2026
Entrata all’88’, si fa espellere per questa tirata di capelli ai danni di #Cooper ?????
Pareri?
#WFN #USA #Spain #SeFutbolFem https://t.co/kum03wwVYu
This was clearly unintentional Vini was only trying to move him out of the way but unfortunately he has long hair https://t.co/mVfIAk9H7F
— ?????????? ™???????? (@ViniJrTalk) October 10, 2026