Fotbolti.net
11.10.26 - 11:14
Brynjar Ingi Erluson

Vini Jr biðst afsökunar - Gæti misst af El Clasico

Vini Jr í leiknum gegn Villarreal

Vini Jr í leiknum gegn Villarreal

Canon

Mynd: EPA

Brasilíski sóknarmaðurinn Vini Jr hefur beðist afsökunar á rauða spjaldinu sem hann fékk í 1-0 sigri Real Madrid á Villarreal í gær.
Spánn: Mark dæmt af Vinicius sem fékk rautt í kjölfarið
TENGT EFNI

Spánn: Mark dæmt af Vinicius sem fékk rautt í kjölfarið

Vini Jr fékk beint rautt spjald þegar tuttugu mínútur voru eftir. Hann hafði skorað af stuttu færi en markið var dæmt af þar sem hann togaði í hár leikmanns Villarreal í aðdragandanum.

Brasilíumaðurinn hefur beðist afsökunar en gæti misst af El Clasico gegn Barcelona. Hann á yfir höfði sér eins til þriggja leikja bann fyrir hártogið.

„Ég er samt ánægður en vil líka biðja liðsfélaga mína og stuðningsmenn Real Madrid afsökunar,“ sagði Vini Jr.

Lýsingin í dómaraskýrslunni bendir til þess að bannið gæti orðið þrír leikir.

„Eftir að Vinicius var rekinn af velli hélt hann áfram að mótmæla ákvörðun minni. Hann öskraði og gekk ógnandi í átt að mér svo liðsfélagar hans þurftu að halda aftur af honum. Ég gat ekki greint nákvæmlega hvað hann sagði,“ segir í skýrslunni.

Real Madrid mætir Barcelona sunnudaginn 25. október. Börsungar eru á toppi deildarinnar með 24 stig en Madrídingar í þriðja sæti með 18 stig.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.