Fotbolti.net
11.11.06 - 11:16
Magnús Már Einarsson

Magnús Þormar í Stjörnuna (Staðfest)

Magnús Þormar í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Magnús Þormar hefur gengið til liðs við Stjörnuna í fyrstu deild en hann hefur allan sinn feril leikið með Keflavík. Magnús mun fá það hlutverk hjá Stjörnunni að fylla skarð markvarðarins Hannesar Þórs Halldórssonar sem fór í Fram á dögunum.
Magnús sem er 22 ára gamall lék einn leik í VISA-bikar karla í sumar en þurfti annars að verma varamannabekkinn hjá Keflvíkingum þar sem Ómar Jóhannsson var á milli stanganna.

Magnús er þriðji leikmaðurinn sem Stjarnan fær í vikunni en varnarmaðurinn Frank Posch kom frá Fram og unlingalandsliðsmaðurinn Elvar Freyr Arnþórsson kom frá Val.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.