Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 11. nóvember 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Burnley ætlar að skila Drinkwater í janúar
Burnley ætlar að skila miðjumanninum Danny Drinkwater til Chelsea í janúar.

Þetta kemur fram í grein á Daily Mail.

Lánssamningur Drinkwater hjá Burnley rennur út í janúar. Burnley hefur möguleika á að framlengja hann, en það er ólíklegt að það gerist.

Chelsea ætlast til þess að Burnley greiði laun Drinkwater, 120 þúsund pund á viku. Burnley er sagt vera að skoða aðra möguleika.

Drinkwater hefur einungis spilað einn leik á tímabilinu, en hann meiddist stuttu eftir að hann kom til Burnley þar sem ráðist var á hann fyrir utan skemmtistað. Hann byrjaði aftur að æfa eftir þau meiðsli undir lok síðasta mánaðar.
Athugasemdir