Fotbolti.net
16.09.26 - 10:56
Kári Snorrason

Rýnt í 100 milljóna króna leikinn - Hvar liggja styrkleikarnir?

100 milljóna króna leikurinn.

100 milljóna króna leikurinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Næstkomandi laugardag mætast Fylkir og Þróttur á Laugardalsvelli í hundrað milljóna króna leiknum sem veitir sigurvegaranum sæti í Bestu deild á næstu leiktíð.

Þróttur endaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar og Fylkir í því þriðja og má því að segja að bestu liðin, fyrir utan Aftureldingu, séu að mætast.

Frá því að umspilið var tekið upp hafa bara lið sem hafa endað í fjórða eða fimmta sæti náð að komast upp um deild en nú verður breyting á.

Fótbolti.net hefur borið liðin saman og dæmt um hvort liðið sé öflugri í hverri línu.
Framkvæmdastjóri ÍTF: Alveg hægt að kalla þetta 100 milljóna króna leik
TENGT EFNI

Framkvæmdastjóri ÍTF: Alveg hægt að kalla þetta 100 milljóna króna leik

Markvarslan: Fylkir
Ólafur Kristófer Helgason hefur fyrir löngu sannað sig sem frábær markvörður og í raun magnað að markvörður af hans gæðaflokki sé að spila annað árið í röð í Lengjudeildinni.

Þórhallur Ísak Guðmundsson, oftast kallaður Laddi, var valinn maður leiksins í báðum undanúrslitaleikjum Þróttar svo það er hart barist um þessa nafnbót. Það er þó spurning hvort að hann hefði átt að vera inn á í báðum leikjunum eftir brot sitt á Oumar Diouck.

Vörnin: Þróttur:
Það hefur farið undir radarinn að Þróttarar hafa verið með besta varnarlið Lengjudeildarinnar þetta árið. Liðið hefur aðeins fengið á sig 26 mörk í 24 leikjum. Sem gerir að meðaltali 1.09 mark í leik.

Leikmaður sem lið í efri deildum hafa fylgst vel með er Hlynur Þórhalsson, hafsent sem er fæddur árið 2005 og verið í stóru hlutverki í vörn Þróttara síðustu ár. Þá er Aron Snær Guðbjörnsson í banni hjá Fylki eftir að hafa fengið rauða spjaldið gegn HK.

Miðjan: Þróttur
Þróttarar taka þennan slag og geta stillt upp í ansi sterka miðju. Brynjar Gautur hefur heillað á tímabilinu og þá fengu þeir Kára Kristjánsson aftur snemma tímabils eftir stutt stopp hans hjá Fimleikafélaginu. Fyrirliðinn Baldur Hannes hefur sömuleiðis reynst Þrótturum vel.

Á miðju Fylkismanna eru þeir Guðfinnur Þór Leósson og Birkir Eyþórsson og er því reynslan meiri hjá Árbæingum. Tumi Fannar Gunnarsson er að upplagi miðjumaður en hefur leikið að undanförnu í bakverði. Ef einhver forföll verða getur Tumi fyllt í skarðið á miðjunni.

Sóknin: Þróttur
Eflaust erfiðasta valið. Sóknarlína beggja liða er stjörnum prýdd en Þróttarar hafa betur. Aron Snær Ingason er eflaust skærasta stjarnan í liði Þróttara og er hann sterklega orðaður við skref á Hlíðarenda eftir tímabil.

Sigurður Egill Lárusson hefur reynst Þrótturum frábær og sást það eflaust best þegar hann var frá vegna meiðsla. Örn Bragi Hinriksson er óvænta stjarna tímabilsins og Magnús Þórðarson hefur komið vel inn í liðið. Adam Árni Róbertsson var sóttur fyrir tímabil frá Grindavík en vegna meiðsla hefur hann komið minna við sögu en búist var við.

Þróttarar þurfa að hafa mestar gætur á Guðmundi Tyrfingssyni. Hann hefur skorað 15 mörk á tímabilinu og skoraði í báðum leikjunum gegn HK.

Magnús Daði Ottesen, sonur Sölva Geirs, er fæddur árið 2010 en Heimir Guðjónsson hefur engu að síður lagt traust sitt á hann. Theódór Ingi Óskarsson og Kári Sigfússon eru þá stórhættulegir á sitthvorum vængnum. Þá sakar ekki að hafa eitt stykki Eyþór Wöhler til að krydda upp á sóknarleikinn.

Þjálfarinn: Fylkir
Heimir Guðjónsson hefur vinningin yfir Sigurvin Ólafsson hér. Heimir þekkir Laugardalsvöll vel en vissulega aldrei stýrt liði við þessar aðstæður.

Sem þjálfari hefur Sigurvin einu sinni farið á Laugardalsvöll, þegar hann var aðstoðarmaður Eiðs Smára með FH. Þar tapaði FH naumlega gegn Víkingi í framlengdum leik.

Heimir er á sínu fyrsta tímabili með Fylki en Sigurvin er að klára þriðja tímabilið sitt í Laugardalnum.
Flautað verður til leiks 16:15.

Flautað verður til leiks 16:15.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttarar hafa fengið fæst mörk á sig í Lengjudeildinni.

Þróttarar hafa fengið fæst mörk á sig í Lengjudeildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir endaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar.

Fylkir endaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson þekkir Laugardalsvöll þokkalega.

Heimir Guðjónsson þekkir Laugardalsvöll þokkalega.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Sigurvin er á sínu þriðja tímabili með Þrótti.

Sigurvin er á sínu þriðja tímabili með Þrótti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík vann HK í úrslitum á síðasta ári.

Keflavík vann HK í úrslitum á síðasta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.